Fotbolti.net
17.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir Arsenal og Man City: Fyrirliðinn bestur

Anderson, Doku, Elliot og Foden fengu fimmur

Einkunnir Arsenal og Man City: Fyrirliðinn bestur
Canon

Mynd: EPA

Arsenal vann sannfærandi sigur á Manchester City er liðin mættust í úrslitaleik um Samfélagsskjöldinn í gær.
Riccardo Calafiori, Kai Havertz og Martin Ödegaard sáu um markaskorunina í 3-0 sigri á heimavelli Cardiff í Wales.

BBC hefur gefið leikmönnum einkunnir og velur fyrirliðann Ödegaard sem mann leiksins, enda sýndi hann magnaða takta auk þess að skora mark í gær.

Noni Madueke var minnst spennandi byrjunarliðsmaður Arsenal með 6 í einkunn.

Gianluigi Donnarumma átti ekki góðan leik á milli stanga Man City og fær 5 í einkunn hjá BBC. Hann er einn af fimm byrjunarliðsmönnum sem fær svo lága einkunn, ásamt Erling Haaland, Jérémy Doku, Elliot Anderson og Phil Foden.

Arsenal: Raya (7), White (7), Mosquera (7), Gabriel (8), Calafiori (8), Lewis-Skelly (8), Guimaraes (7), Ödegaard (9)
Varamenn: Rice (7), Hincapie (7), Saka (6), Gyökeres (6), Zubimendi (6), Eze (6)

Man City: Donnarumma (5), Khusanov (6), Dias (6), Gvardiol (6), O'Reilly (6), Kovacic (6), Anderson (6), Foden (5), Semenyo (6), Doku (5), Haaland (5)
Varamenn: Lewis (5), Gonzalez (5), Cherki (6), Grealish (6), Marmoush (6), Guehi (6)
Einkunnir Arsenal og Man City: Fyrirliðinn bestur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.