16.08.26 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Aston Villa sagði nei við Juventus

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gianluca Di Marzio hjá Sky á Ítalíu segir frá því að Juventus hafi ákveðið að snúa sér að öðrum skotmörkum eftir að Aston Villa hafnaði tilboði í markvörðinn sinn Emiliano Martínez.

TENGT EFNI
Juventus leggur fram tilboð í Martínez
Juve er í leit að nýjum aðalmarkverði og hefur verið sterklega orðað við Martínez og Guglielmo Vicario sem leika báðir í ensku úrvalsdeildinni. Villa og Tottenham höfnuðu tilboðum Juventus í markverðina sína í gær.
Sky segir að Juve ætli að reyna við Vicario af auknum krafti eftir að Villa hafnaði kauptilboði í 33 ára Martínez sem hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu.
Martínez hefur unnið til mikilvægra einstaklingsverðlauna á undanförnum árum og varð heimsmeistari með Argentínu 2022, auk þess að hjálpa Aston Villa að vinna Evrópudeildina á síðustu leiktíð.
Villa er þrátt fyrir það að ganga frá kaupum á Zion Suzuki markverði Parma, sem var næstum farinn til PSG á dögunum.