Fotbolti.net
17.08.26 - 10:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Vildi vera í stærra hlutverki og þróast betur sem leikmaður"

Ég vildi fara á lán til þess að fá meiri spiltíma

Ég vildi fara á lán til þess að fá meiri spiltíma

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er geggjað að vera mættur í Mosó og fyrstu vikur eru búnar að vera mjög skemmtilegar. Þjálfarar og leikmenn eru búnir að taka mjög vel á móti mér og það er gríðarlegur stemmari í þessum hóp," segir Haukur Örn Brink sem gekk í raðir Aftureldingar á láni frá uppeldisfélaginu Stjörnunni í félagaskiptaglugganum í síðasta mánuði.

Haukur er 21 árs sóknarmaður sem átti gott undirbúningstímabil með Stjörnunni en tækifærin í Bestu deildinni voru takmörkuð. Hann byrjaði sinn fyrsta leik með Aftureldingu á fimmtudag og skoraði eitt af þremur mörkum liðsins í 3-3 jafntefli í Árbænum. Hann skoraði með skoti fyrir utan teig.
Afturelding alltaf fyrsti kostur
„Ég vildi fara á lán til þess að fá meiri spiltíma, vera í stærra hlutverki og þróast betur sem leikmaður. Afturelding er mjög spennandi lið, ég fíla boltann sem liðið spilar og mér finnst hann henta mér mjög vel."

„Mér fannst líka mjög spennandi að þeir væru ennþá í bikarkeppninni. það voru nokkrir kostir í boði en Afturelding var alltaf fyrsti kosturinn."


Haukur kom í Aftureldingu fyrir leikinn gegn Fylki í undanúrslitum bikarsins en tók út leikbann í þeim leik. Afturelding sigraði þann leik eftir vítaspyrnukeppni og spilar í fyrsta sinn í sögu félagsins til úrslita í bikarnum eftir tæpan mánuð. Andstæðingurinn verður Breiðablik.

Þjálfarabreyting eftir síðasta viðtal
Þú sagðir í viðtali við Fótbolta.net í vor að þú vildir spila meira, breyttist hlutverkið eitthvað eftir það?

„Það er erfitt að svara því, vegna þess að ég held að það hafi verið þjálfaraskipti næsta leik eftir að ég sagði þetta þannig hlutirnir breyttust aðeins."

Lítur ekki vel út núna í Garðabænum
Hvernig var að fara frá Stjörnunni og horfa á þá utan frá, hvernig líst þér á stöðuna?

„Það er auðvitað erfitt að fara frá uppeldisfélaginu og öllum vinunum en ég er alveg viss um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá mér. Staðan lítur ekki vel út hjá Stjörnunni núna en ég veit hvað býr í þessum hóp og ég veit að þeir munu alltaf snúa þessu við."

Fókus á einn leik í einu
Markmiðið skýrt hjá Aftureldingu, beint upp og bikarmeistaratitill?

„Auðvitað ætlum við okkur að vinna þetta allt og ég hef fulla trú á þessum hóp til að gera það, en það er bara fókus núna á einn leik í einu og það er gríðarlega mikilvægur leikur á móti HK í næsta leik sem við þurfum að vinna," segir Haukur.

Leikurinn gegn HK fer fram í kvöld, leikurinn hefst klukkan 19:15 á Malbikstöðinni að Varmá.
Afturelding er mjög spennandi lið, ég fíla boltann sem liðið spilar og mér finnst hann henta mér mjög vel

Afturelding er mjög spennandi lið, ég fíla boltann sem liðið spilar og mér finnst hann henta mér mjög vel

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfarar og leikmenn eru búnir að taka mjög vel á móti mér og það er gríðarlegur stemmari í þessum hóp

Þjálfarar og leikmenn eru búnir að taka mjög vel á móti mér og það er gríðarlegur stemmari í þessum hóp

Canon

Mynd: Afturelding

Sigrinum gegn Fylki í bikarnum fagnað.

Sigrinum gegn Fylki í bikarnum fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding17+2235
2Þróttur R.18+1934
3Fylkir18+934
4Njarðvík18+832
5HK18+931
6Grótta17+126
7Vestri18-924
8Leiknir R.18-322
9Grindavík18-620
10ÍR18-919
11Völsungur18-1417
12Ægir18-278
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.