Fotbolti.net
17.09.20 - 17:06
Aksentije Milisic

Jóhann Berg borinn af velli - Óttast að meiðslin séu alvarleg

Jóhann Berg borinn af velli - Óttast að meiðslin séu alvarleg
Canon

Mynd: Getty Images

Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður Burnley, var í byrjunarliði Burnley sem er að spila við Sheffield United í deildarbikarnum.
Jóhann lenti í slæmri tæklingu snemma í leiknum og þurfti að bera hann af velli. Hann þurfti að notast við súrefnisgrímu.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Jóhann en hann var mikið meiddur á síðasta tímabili en tókst að spila undir lokin. Nokkrir stuðningsmenn Burnley skrifuðu á Twitter og þar óttast þeir að þess meiðsli séu mjög alvarleg.

Margir hefðu viljað sjá rauða spjaldið fara upp eftir tæklinguna en það gerðist ekki. Sendum Jóhanni batakveðjur og vonandi eru meiðslin ekki eins alvarleg og þau litu út fyrir að vera.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.