Thomas Strakosha, markvörður Lazio, vill líklega gleyma 1-0 tapinu gegn Galatasaray sem allra fyrst en hann gerði hræðileg mistök í eina marki leiksins.
Sigurmarkið kom á 66. mínútu leiksins. Manuel Lazzari ætlaði að hreinsa og þrumaði boltanum hátt upp í loftið.
Boltinn var á niðurleið og Strakosha tilbúinn að grípa knöttinn en það fór ekki betur en svo að hann missti boltann inn í netið.
Hægt er að sjá þetta mark hér fyrir neðan.
Athugasemdir