Fotbolti.net
16.09.26 - 20:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rúnar mjög ósáttur með fyrirkomulagið - „Enginn leikmaður sem nennir þessu"

Rúnar mjög ósáttur með fyrirkomulagið - „Enginn leikmaður sem nennir þessu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ómyrkur í máli í viðtali á RÚV eftir tap liðsins gegn Breiðabliki í gær.

Rúnar er ósáttur með fyrirkomulagið þar sem deildin skiptist upp í tvo hluta eftir 22 umferðir. Það eru fjórar umferðir eftir en Fram þarf aðeins eitt stig til að gulltryggja sér Evrópusæti. Deildin fer í þriggja vikna hlé vegna landsleikja eftir næstu umferð um helgina.
„Það er bara jafn ömurlegt og þessi úrslitakeppni er. Eins og ég hef sagt síðan þessi úrslitakeppni hófst, þetta verður aldrei skemmtilegt. Ég er á móti þessu," sagði Rúnar.

„Það er voða gaman fyrir mig að vera með lið í toppbaráttu og eiga séns á að berjast um titil þangað til í dag. En því miður þá hefur það bara gerst einu sinni að það hafi orðið einhver úrslitaleikur í síðustu umferð. Öll hin skiptin eru Íslandsmeistarar krýndir löngu áður en mótinu lýkur."

„Ef þú horfir á Stjörnuna, Val, Keflavík og Akranes, fjórir leikir eftir, einn leikur um næstu helgi svo kemur þriggja vikna pása. Þetta er galið. Það er enginn leikmaður sem nennir þessu. Ég tala hreint út, þetta er alls ekki gott og auðvitað er UEFA ekki að hjálpa okkur með því að lengja landsleikjahléið í fjögurra leikja hrinu," sagði Rúnar að lokum.

Fram er í 3. sæti, tveimur stigum á eftir KR. Rúnar sagði í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn að liðið ætli sér að ná 2. sætinu sem tryggir liðum beint í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Heimild: RÚV

Rúnar mjög ósáttur með fyrirkomulagið - „Enginn leikmaður sem nennir þessu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar: Hvað á ég að segja annað?

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.