Callum Hudson-Odoi fór á kostum þegar U21 landslið Englands vann 5-1 sigur á Austurríki í vikunni.
Hudson-Odoi skoraði tvö frábær mörk, það síðara einstaklega glæsilegt.
Hudson-Odoi skoraði tvö frábær mörk, það síðara einstaklega glæsilegt.
Hann hljóp frá vallarhelmingi Englands og að vítateig Austurríki. Fyrir utan vítateiginn lét hann vaða á markið og söng boltinn í netinu.
Marc Guehi, liðsfélagi Hudson-Odoi hjá Chelsea, var orðlaus yfir þessu glæsilega marki.
„Ég var orðlaus. Þetta var stórkostlegt mark. Þetta var frábær skyndisókn og hann er þannig leikmaður sem getur gert svona hluti. Ég er í skýjunum fyrir hans hönd," sagði Guehi við Goal.com.
„Þetta kom mér samt ekki mikið á óvart, ég býst við þessu frá honum. Ég hef séð þetta frá því við vorum sjö ára. Ég vil ekki setja of mikla pressu á hann, en ég held að fólk eigi að búast við meiru af þessu frá honum. Fólk á að vera spennt fyrir framtíð hans."
Hudson-Odoi hefur verið að stíga upp úr meiðslum og hefur hann aðeins komið við sögu í tveimur leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu til þessa.
Fyrir áhugasama er markið hér að neðan.
🤯 Callum Hudson Odoi’s 2nd goal 🤩 pic.twitter.com/Q7jDfx15MP
— CHO Stuff (@CHOStuff) October 15, 2019
Athugasemdir