Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. október 2020 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Napoli svaraði sambandinu með fjórum gegn Atalanta
Mynd: Getty Images
Napoli 4 - 1 Atalanta
1-0 Hirving Lozano ('23 )
2-0 Hirving Lozano ('27 )
3-0 Matteo Politano ('30 )
4-0 Victor Osimhen ('43 )
4-1 Sam Lammers ('69 )

Napoli vann 4-1 sigur á Atalanta í stórleik í ítalska boltanum. Leikið var á heimavelli Napoli.

Hirving Lozano skoraði tvö fyrstu mörk leiksins og Matteo Politano bætti við þriðja marki heimamanna á 30. mínútu og næstur á blað var Victor Osimhen sem gekk í raðir Napoli fyrir metupphæð í sumar.

Markið var fyrsta mark Osimhen í keppnisleik fyrir Napoli. David Ospina átti spyrnu fram völlinn, Osimhen tók boltann á kassann, lét svo vaða og skoraði.

Sam Lammers klóraði í bakkann fyrir gestina um miðjan seinni hálfleiks en lengra komust gestirnir ekki.

Leikurinn var fyrsti leikur Napoli eftir að hafa verið dæmt 3-0 tap gegn Juventus ásamt því að stig var dregið af liðinu fyrir að mæta ekki til leiks. Napoli gat ekki mannað leikinn þar sem leikmenn voru í sóttkví.
Athugasemdir
banner
banner