Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. október 2020 14:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meiðsli Van Dijk líta ekki vel út
Mynd: Getty Images
Virgil van DIjk, miðvörður Liverpool, þurfti að hætta leik á 11. mínútu gegn Everton í dag

Það var í kjölfar tæklingar Jordan Pickford, markvarðar Everton, eftir fyrirgjöf. Pickford óð út á móti van Dijk og fór hátt með lappirnar í miðvörðinn.

Hollendingurinn var dæmdur rangstæður og því gat Liverpool ekki fengið vítaspyrnu fyrir brotið.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, tjáði sig um meiðslin eftir leik. Hann sagði að venjulega harki miðvörðurinn af sér og spili kvalinn en ekki í þetta skiptið.

„Þetta lítur ekki vel út en við þurfum að bíða og sjá," sagði Klopp við BBC eftir leik.
Athugasemdir
banner
banner