Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. október 2020 20:58
Victor Pálsson
Spánn: Getafe lagði Barcelona
Mynd: Getty
Getafe 1 - 0 Barcelona
1-0 Jaime Mata('56, víti)

Barcelona tapaði í kvöld sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu til þessa er liðið heimsótti Getafe.

Fyrr í dag tapaði Real Madrid mjög óvænt gegn Cadiz á heimavelli og var það einnig fyrsti tapleikur meistaranna.

Börsungar náðu sér ekki á strik í ansi tíðindalitlum leik þar sem einn mark var gert og það voru heimamenn.

Jaime Mata skoraði eina mark leiksins snemma í seinni hálfleik en það kom af vítapunktinum.

Barcelona ógnaði marki Getafe afar lítið í viðureigninni og átti aðeins eitt skot á markið.

Athugasemdir
banner
banner
banner