15.09.26 - 19:22
Brynjar Ingi Erluson
Gatorade bikar Fótbolta.net: Haukar í úrslit eftir vítakeppni

Haukar eru komnir í úrslit

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kormákur/Hvöt er úr leik

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Haukar og Selfoss mætast í úrslitum

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Haukar eru komnir í úrslit

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kormákur/Hvöt 1 - 1 Haukar (3-4 eftir vítakeppni)
1-0 Pol Morlans Martin ('45 )
1-1 Daði Snær Ingason ('71 )
Vítakeppnin:
1-2 Daði Snær Ingason ('120 , víti)
1-2 Pere Belmonte ('120 , misnotað víti)
1-3 Máni Mar Steinbjörnsson ('120 , víti)
2-3 Manuel Ferriol Martínez ('120 , víti)
2-4 Tómas Atli Björgvinsson ('120 , víti)
3-4 Sten Reinkort ('120 , víti)
3-5 Óliver Steinar Guðmundsson ('120 , víti)
4-5 Pol Morlans Martin ('120 , víti)
4-5 Kári Vilberg Atlason ('120 , misnotað víti)
4-5 Federico Ignacio Russo Anzola ('120 , misnotað víti)
Rautt spjald: Lárus Guðmundur Jónsson, Kormákur/Hvöt ('119) Lestu um leikinn

Haukar mæta Selfyssingum í úrslitum Gatoradebikars Fótbolta.net eftir hádramatískan sigur á Kormáki/Hvöt í vítaspyrnukeppni á Blönduósvelli í kvöld.
Leikið var á Blönduósvelli, heimavelli Kormáks/Hvatar, en Haukar fóru betur af stað. Þeir áttu snemma aukaspyrnu í þverslá og skömmu síðar þurftu heimamenn að bjarga á línu.
Haukar voru sterkari aðilinn framan af en þegar leið á hálfleikinn sótti Kormákur/Hvöt í sig veðrið án þess þó að skapa sér mikið.
Undir lok hálfleiksins voru Haukar aftur nálægt því að skora þegar Uros Djuric, markvörður Kormáks/Hvatar, misreiknaði aukaspyrnu inn á teiginn. Boltinn stefndi í netið en varnarmaður heimamanna bjargaði á línu, í annað sinn í hálfleiknum.
Gestirnir fengu síðan alvöru spark í magann rétt fyrir hlé þegar Pol Morlans Martin kom Kormáki/Hvöt yfir. Bilal Kamal stakk boltanum inn á Pol sem kláraði vel í fjærhornið.
Staðan var 1-0 í hálfleik og heimamenn byrjuðu þann síðari af krafti. Pere Belmonte fékk dauðafæri til að tvöfalda forystuna þegar hann slapp í gegn en skaut í hliðarnetið. Hinum megin átti Einar Karl Ingvarsson skot í stöngina.
Haukar fóru smám saman að herða pressuna og Daði Snær Ingason lét mikið að sér kveða. Hann fékk tvö færi á skömmum tíma áður en hann jafnaði á 71. mínútu. Haukar tóku hornspyrnu stutt, boltinn barst á Óliver Steinar Guðmundsson sem náði ekki góðum skalla en boltinn datt út á Daða sem skoraði með frábæru skoti.
Bæði lið fengu færi til að stela sigrinum undir lokin. Belmonte komst aftur í dauðafæri fyrir heimamenn en setti boltann yfir. Þá fékk Jón Arnar Barðdal gott færi hinum megin sem Uros varði og frákastið féll fyrir Jón Gísla Stefánsson sem setti boltann í hliðarnetið.
Það þurfti því að framlengja en hvorugu liðinu tókst að finna sigurmarkið þar. Lárus Guðmundur Jónsson, liðsstjóri Kormáks/Hvatar, fékk að líta rauða spjaldið undir lok framlengingarinnar.
Í vítaspyrnukeppninni höfðu Haukar betur, 4-3. Belmonte, sem hafði farið illa með góð færi í leiknum, skaut yfir og Federico Ignacio Russo Anzola klúðraði síðan síðustu spyrnu heimamanna. Haukar skoruðu úr öllum fjórum spyrnum sínum en Uros varði eina frá gestunum.
Haukar eru því komnir í úrslitaleikinn gegn Selfossi sem fer fram á Laugardalsvelli á föstudag. Haukar unnu 2. deildina á dögunum en Selfoss hafnaði í öðru sæti og bæði lið leika því í Lengjudeildinni á næstu leiktíð.