Fotbolti.net
15.09.26 - 17:53
Brynjar Ingi Erluson

Fylgir nánast öllu liði Real Madrid á Instagram - Æfir ekki með Man Utd

Fylgir nánast öllu liði Real Madrid á Instagram - Æfir ekki með Man Utd
Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

JJ Gabriel, ein helsta vonarstjarna Manchester United, hefur tjáð félaginu að hann vilji yfirgefa það þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið. Ýmislegt bendir til þess að hugur hans leiti til Spánar.
Helsta vonarstjarnan vill fara frá Man Utd
TENGT EFNI

Helsta vonarstjarnan vill fara frá Man Utd

Þessi fimmtán ára gamli leikmaður hefur lengi verið talinn ein mesta vonarstjarna United og stuðningsmenn beðið spenntir eftir því að sjá hann fá tækifæri með aðalliðinu.

Hann lék sínar fyrstu mínútur með aðalliðinu í æfingaleik gegn Atlético Madrid í sumar en hefur enn ekki fengið tækifæri á þessu tímabili.

JJ Gabriel, sem hefur verið kallaður „hinn nýi Messi“, skoraði á dögunum þrennu með unglingaliði United í Meistaradeildinni og setti um leið met.

Stjórnarmenn United halda enn í vonina um að halda honum hjá félaginu en svo virðist sem hugur hans sé farinn annað, líklegast til Spánar. Gabriel hefur fylgt nánast öllu liði Real Madrid á Instagram og hefur einnig verið orðaður við Barcelona og Manchester City.

Hann hefur heldur ekkert æft með United síðustu tvo sólarhringa og því talið ólíklegt að hann verði í hópnum gegn Brighton í enska deildabikarnum á morgun.

Samuel Luckhurst hjá Manchester Evening News segir síðasta stráið hafa verið í kringum leik United gegn Sabah í Meistaradeildinni þar sem Shea Lacey og Harry Amass þreyttu frumraun sína í keppninni en Gabriel þurfti að spila með unglingaliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.