Fotbolti.net
15.09.26 - 18:58
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo með glímubrögð í stóru tapi

Cristiano Ronaldo hefur ekki skorað í tveimur leikjum í röð

Cristiano Ronaldo hefur ekki skorað í tveimur leikjum í röð

Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo og félagar í Al Nassr fengu 4-0 skell gegn Al Ain frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í deildarkeppni Meistaradeildar Asíu í kvöld.
Ronaldo mistókst að skora annan leikinn í röð og komst því ekkert nær þúsund marka múrnum að þessu sinni.

Hann fékk þó nokkur færi. Eitt þeirra kom úr aukaspyrnu sem hann hamraði í átt að vinstra horninu en markvörðurinn varði vel. Þá var hann við það að sleppa í gegn þegar leikmaður fór aftan í hann og Ronaldo missti jafnvægið.

Síðar sýndi hann svo ágætis glímubrögð þegar hinn smávaxni Matias Palacios reyndi að stöðva hlaup hans. Ronaldo skellti honum í grasið og var greinilega ekki sáttur við þessa aðferð Palacios.

4-0 varð niðurstaðan en Ronaldo fær næsta tækifæri til að reima á sig markaskóna þegar Al Nassr tekur á móti Darwin Nunez og félögum í Al Diriyah í október.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.