Fotbolti.net
17.10.26 - 16:26
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Andri Lucas skoraði tvö í grátlegu tapi

Andri Lucas heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Blackburn

Andri Lucas heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Blackburn

Canon

Mynd: Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen gerði sér lítið fyrir og skoraði tvennu fyrir Blackburn í annars grátlegu 3-2 tapi gegn WBA í ensku B-deildinni í dag.
Landsliðsmaðurinn hefur farið á kostum í upphafi tímabilsins og verið helsta ógn Blackburn í sóknarleiknum.

Hann var heldur betur í stuði í dag og skoraði tvö mörk á fyrstu tólf mínútunum sem komu Blackburn í 2-0 forystu. Þetta voru fimmta og sjötta mark Andra í deildinni á tímabilinu, en þrátt fyrir draumabyrjunina átti Blackburn eftir að kasta sigrinum frá sér.

Barney Stewart minnkaði muninn fyrir WBA á 19. mínútu og Isaac Price jafnaði úr vítaspyrnu á 72. mínútu. Andra var síðan skipt af velli skömmu síðar, en það átti eftir að versna enn frekar fyrir Blackburn.

Undir lok leiksins skoraði Felix Myhre sigurmark WBA og fullkomnaði ótrúlega endurkomu gestanna. Grátleg niðurstaða fyrir Blackburn sem er í tíunda sæti deildarinnar með 15 stig, á meðan WBA situr í fimmta sæti með 20 stig.

Mörk Andra má sjá neðst í fréttinni.

West Ham vann á sama tíma mikilvægan 1-0 sigur á Swansea í toppslag deildarinnar, en hinn 19 ára gamli Divine Mukasa, sem er á láni frá Manchester City, skoraði eina mark leiksins.

Með sigrinum komst West Ham upp í annað sæti deildarinnar með 22 stig, aðeins einu stigi á eftir Swansea sem heldur toppsætinu að sinni.

Birmingham 3 - 0 QPR
1-0 Liam Millar ('27 )
2-0 Liam Millar ('49 )
3-0 Demarai Gray ('90 )

Bristol City 0 - 1 Sheffield Utd
0-1 Ollie Arblaster ('5 )

Derby County 0 - 1 Stoke City
0-1 Luke Graham ('49 )

Norwich 0 - 1 Portsmouth
0-1 Marko Milovanovic ('51 , víti)

Southampton 0 - 0 Bolton

Swansea 0 - 1 West Ham
0-1 Divine Mukasa ('34 )

West Brom 3 - 2 Blackburn
0-1 Andri Gudjohnsen ('6 )
0-2 Andri Gudjohnsen ('12 )
1-2 Barney Stewart ('19 )
2-2 Isaac Price ('72 , víti)
3-2 Felix Horn Myhre ('89 )

Wrexham 4 - 1 Preston NE
1-0 Joe Worrall ('31 )
1-1 Alfie Devine ('36 )
2-1 Ben Whiteman ('42 )
3-1 Toby Samuel Smith ('59 )
4-1 Kieffer Moore ('63 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea11+823
2West Ham11+1822
3Middlesbrough11+622
4Birmingham11+920
5West Brom11+320
6Stoke City11+219
7Southampton11+1117
8QPR11+317
9Wolves10+317
10Blackburn11+115
11Sheffield Utd11+115
12Millwall11015
13Portsmouth10014
14Wrexham11-114
15Bristol City11-314
16Bolton11-314
17Charlton Athletic11-514
18Lincoln City11-1012
19Cardiff City11+111
20Watford11-911
21Norwich11-49
22Burnley11-58
23Derby County11-116
24Preston NE11-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.