Fotbolti.net
17.10.26 - 16:34
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Dortmund á toppinn þrátt fyrir slaka frammistöðu

Dortmund gerði markalaust jafntefli en það dugði til að komast á toppinn

Dortmund gerði markalaust jafntefli en það dugði til að komast á toppinn

Canon

Mynd: EPA

Borussia Dortmund tapaði stigum í 6. umferð þýsku deildarinnar í dag.
Borussia Dortmund fékk gullið tækifæri til að komast á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í dag og tókst það vissulega, en liðið varð þó af tveimur mikilvægum stigum eftir markalaust jafntefli gegn Union Berlín.

Union er eitt af slökustu liðum deildarinnar og horfir því Dortmund eflaust á þetta sem tvö töpuð stig.

Dortmund er því á toppnum með 14 stig, einu stigi meira en Freiburg í öðru sæti, en Bayern München getur komist upp fyrir bæði lið með sigri á RB Leipzig síðar í dag.

Cole Campbell var ekki í leikmannahópi nýliðanna í Elversberg sem unnu ævintýralegan 4-3 sigur á Augsburg. Elversberg hefur komið skemmtilega á óvart í upphafi tímabilsins og situr í sjötta sæti deildarinnar með tíu stig.

Stuttgart tapaði 1-0 fyrir Hamburger SV og Mainz vann Schalke með sömu markatölu.

Union Berlin 0 - 0 Borussia D.

Schalke 04 0 - 1 Mainz
0-1 Phillip Tietz ('24 )

Hamburger 1 - 0 Stuttgart
1-0 Miro Muheim ('88 )

Elversberg 4 - 3 Augsburg
1-0 Lukas Petkov ('4 )
1-0 Lukas Petkov ('4 , Misnotað víti)
2-0 Lasse Gunther ('7 )
3-0 Maximilian Rohr ('28 )
3-1 Fabian Rieder ('45 , víti)
3-2 Michael Gregoritsch ('76 , víti)
4-2 Frederik Schmahl ('89 )
4-3 Mert Komur ('90 )
4-3 Noel Futkeu ('90 , Misnotað víti)

Werder 2 - 2 Paderborn
0-1 Stefano Marino ('18 )
0-2 Steffen Tigges ('30 )
1-2 Niclas Fullkrug ('59 )
2-2 Niclas Fullkrug ('65 , víti)

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Dortmund6+714
2Freiburg5+1013
3Bayern5+1211
4Leverkusen5+610
5Mainz6+410
6Elversberg6+110
7RB Leipzig5+109
8Werder609
9Hamburger6-99
10Augsburg6+48
11Frankfurt6-68
12Köln6-37
13Stuttgart6-26
14Schalke 046-35
15Paderborn6-45
16Union Berlin6-125
17Hoffenheim5-43
18Gladbach5-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.