Dagur Orri: Erfitt að mótivera sig í svona baráttu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Frábært að vinna leikinn, sérstaklega þegar KA menn komu svona aggresívir inn í leikinn, þar sem þeir þurftu að vinna leikinn. Við bara svöruðum því með sterkum sigri," sagði Dagur Orri Garðarsson leikmaður Vals eftir 4-1 sigur gegn KA.
Valur hafði töluvert minna að spila fyrir en KA þar sem þeir sigla lignan sjó í deildinni á meðan KA er að berjast fyrir áframhaldandi veru í deildinni.
„Það er alveg erfitt að mótivera sig í svona baráttu við lið sem er að berjast fyrir lífinu. Í dag gerðum við það vel, eftir lélegan seinasta leik, sem er bara mjög gott hjá okkur. Ég var bara ánægður með liðsheildina í liðinu í dag, við vorum allir saman í þessu og þetta gekk vel," sagði Dagur.
KA menn reyndu hvað þeir gátu að sækja á mörgum mönnum í seinni hálfleik til þess að komast aftur inn í leikinn og Dagur nýtti það pláss sem þeir skildu eftir sig vel og skoraði tvö mörk.
„Ég var orðinn alveg búinn á því þarna í lokin. Þá bara fer maður aðeins niður, svo bara bíður maður eftir einhverjum löngum bolta og það heppnaðist vel að ég gat endað þetta á einu marki í viðbót í lokin," sagði Dagur.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
