Fotbolti.net
17.10.26 - 16:41
Brynjar Ingi Erluson

Ólafur hafði betur gegn Júlíusi

Ólafur Guðmunds spilar með Álasundi

Ólafur Guðmunds spilar með Álasundi

Canon

Mynd: Álasund

Ólafur Guðmundsson og félagar hans í Álasundi fögnuðu 4-1 sigri á Júlíusi Mar Júlíussyni og félögum í Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Ólafur var í byrjunarliði Álasunds á meðan Júlíus byrjaði hjá heimamönnum.

Staðan var 1-1 í hálfleik, en í þeim síðari tóku gestirnir öll völd og skoruðu þrjú mörk til að tryggja sér mikilvægan sigur sem lyfti þeim upp úr fallsæti.

Álasund er nú í 13. sæti deildarinnar með 24 stig á meðan Kristiansund situr í 15. sæti með 19 stig.

Nóel Atli Arnórsson kom inn af bekknum í síðari hálfleik hjá Álaborg sem tapaði 1-0 fyrir Vejle í dönsku B-deildinni. Álaborg er í sjötta sæti með 14 stig.

Kristófer Jónsson var á miðjunni hjá Reggiana sem vann 2-0 sigur á Torres í B-riðli ítölsku C-deildarinnar. Reggiana er í fjórða sæti með 17 stig.

Eyþór Martin Björgólfsson kom inn af bekknum hjá Motherwell sem kastaði frá sér forystunni og tapaði 3-2 fyrir Kilmarnock í skosku úrvalsdeildinni.

Motherwell hefur nú tapað fimm leikjum í röð og situr í tíunda sæti með átta stig, aðeins einu stigi fyrir ofan botnsætið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.