Franska meistaraliðið Paris Saint-Germain ætlar sér að fá enska miðjumanninn Adam Lallana frá Liverpool á frjálsri sölu næsta sumar en það er Mirror sem greinir frá.
Lallana, sem er 31 árs gamall, kom til Liverpool frá Southampton árið 2014 en á tíma hans hjá félaginu hafa meiðsli sett strik í reikninginn síðustu tvö árin.
Hann hefur náð sér af meiðslunum en á erfitt með að brjóta sér leið inn í liðið.
Lallana hefur aðeins spilað 8 leiki, skorað 1 mark og lagt up 1 á þessu tímabili en samningur hans við félagið rennur út næsta sumar og er útlit fyrir að hann sé á förum.
Samkvæmt Mirror þá ætlar PSG að fá Lallana á frjálsri sölu næsta sumar en hann hefur einnig verið orðaður við lið frá Kína og Bandaríkjunum.
Athugasemdir