Fotbolti.net
15.11.26 - 13:25
Brynjar Ingi Erluson

Kominn með nóg af Ancelotti - „Pakkaðu í töskur og farðu!“

Carlo Ancelotti

Carlo Ancelotti

Canon

Mynd: EPA

Brasilíska landsliðið tapaði óvænt fyrir Japan, 3-2, í æfingaleik í gær og er goðsögnin Romario búinn að fá nóg. Hann vill að Carlo Ancelotti verði rekinn úr starfi.
Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"
TENGT EFNI

Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"

Ancelotti tók við brasilíska landsliðinu á síðasta ári og hélt óvænt starfi sínu þrátt fyrir að Brasilía hafi dottið úr leik gegn Noregi í 16-liða úrslitum HM í sumar.

Romario, sem er einn besti fótboltamaður í sögu Brasilíu, segir nú nóg komið og kallar eftir breytingum á þjálfarateymi landsliðsins.

„Ancelotti, nú er nóg komið. Pakkaðu í töskurnar og farðu!“

„Það efast enginn um arfleifð þína. Þú ert einn besti þjálfari fótboltasögunnar, en það er í félagsliðaboltanum. Þú hefur enn ekki sýnt neitt með brasilíska landsliðinu og við getum ekki haldið svona áfram.“

„Viltu halda áfram að þjálfa? Farðu þá aftur í félagsliðaboltann þar sem þú skapaðir þér nafn, því brasilíska landsliðið hefur ekki efni á því að halda áfram að taka áhættu og bíða eftir að sjá hvað gerist,“
sagði Romario á Instagram.

Frá því Ancelotti tók við hefur brasilíska liðið unnið tólf leiki, tapað fimm og gert fjögur jafntefli.
Romario er ekki þekttur fyrir að liggja á skoðunum sínum

Romario er ekki þekttur fyrir að liggja á skoðunum sínum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.