Fotbolti.net
17.11.26 - 14:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Andri Lucas sá langlíklegasti til að fara næst í úrvalsdeildina

Skoraði fjögur mörk í tveimur landsleikjum.

Skoraði fjögur mörk í tveimur landsleikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Umræðuefni sem oft kemur upp í spjalli um fótbolta hjá Íslendingum er hver verði næsti íslenski leikmaðurinn til að semja við félag í ensku úrvalsdeildinni.

Við Íslendingar eigum fulltrúa í úrvalsdeildinni, landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er varamarkvörður Brentford. En hver verður sá næsti?

Að undanförnu hafa framherjarnir okkar raðað inn mörkum og samkvæmt Epicbet er Andri Lucas Guðjohnsen langlíklegasti Íslendingurinn til að verða sá næsti sem semur við félag í ensku úrvalsdeildinni.
Fengið mikið af skilaboðum frá virtu fólki í bransanum
TENGT EFNI

Fengið mikið af skilaboðum frá virtu fólki í bransanum

Andri er næstmarkahæstur í ensku B-deildinni með Blackburn og skoraði fjögur mörk í tveimur landsleikjum.

Orri Steinn Óskarsson er næstur á lista en hann hefur verið orðaður við félög eins og Manchester United, Tottenham, Everton og Newcastle að undanförnu.

Í þriðja sæti er svo markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson sem var undir smásjá Hull City í sumar.

Næstir koma svo Hákon Arnar Haraldsson (Lille), Albert Guðmundsson (Lazio), Ísak Bergmann Jóhannesson (Köln) og U21 landsliðsmaðurinn Viktor Bjarki Daðason (FCK) sem fæddur er árið 2008.
Þrenna gegn Búlgaríu.

Þrenna gegn Búlgaríu.

Canon

Mynd: KSÍ

Andri Lucas sá langlíklegasti til að fara næst í úrvalsdeildina
Canon

Mynd: Skjáskot

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.