Fotbolti.net
17.11.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Dagur Hammer yfirgefur Leikni

Dagur Hammer yfirgefur Leikni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Dagur Ingi Hammer Kristinsson hefur yfirgefið Leikni eftir tvö tímabil í Breiðholti.

Grindvíkingurinn lék 46 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim 16 mörk. Á liðnu tímabili skoraði hann fimm mörk í Lengjudeildinni og tvö í bikarnum.

Sóknarmaðurinn heldur nú á önnur mið, hann hefur mestan ferilinn spilað með uppeldisfélaginu Grindavík en lék 2021 á láni hjá Þrótti Vogum.
„Við þökkum Degi Inga kærlega fyrir framlag hans til félagsins, mörkin, baráttuna og allt sem hann hefur lagt til félagsins.
Við óskum honum alls hins besta í þeim verkefnum sem framtíðin ber í skauti sér,"
segir í tilkynningu Leiknis.
Dagur Hammer yfirgefur Leikni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Dagur Hammer yfirgefur Leikni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Dagur Hammer yfirgefur Leikni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Dagur Hammer yfirgefur Leikni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.