Fotbolti.net
16.11.26 - 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
- Laugardalsvelli

Einkunnir Íslands - Alvöru fyrirliðaframmistaða

Einkunnir Íslands - Alvöru fyrirliðaframmistaða
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland vann vægast sagt þægilegan sigur gegn Lúxemborg í síðasta leiknum í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. Ísland vinnur riðilinn og fer upp í B-deildina á nýjan leik.

Hér fyrir neðan má sjá einkunnir Ísland í 3-0 sigri.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
Hákon Rafn Valdimarsson - 6
Gat fengið sér sæti og heitt kakó ef hann hefði viljað.

Guðlaugur Victor Pálsson - 6
Flottur varnarlega og sinnti sínu vel í leiknum.

Hjörtur Hermannsson - 7
Traustur í hjarta varnarinnar eftir að hafa verið kallaður inn í hópinn fyrir leikinn. Sýndi að hann er góður kostur í þessa stöðu.

Daníel Leó Grétarsson - 7
Óvíst var hvort hann gæti spilað í þessum glugga af persónulegum ástæðum en hann gerði það og spilaði mjög vel. Einn okkar mikilvægasti leikmaður.

Logi Tómasson - 6
Fór lítið fyrir Loga í fyrri hálfleiknum en aðeins meira í seinni hálfleik.

Mikael Egill Ellertsson 7
Skoraði gott mark í seinni hálfleiknum. Hefði oft á tíðum mátt taka betri ákvarðanir með boltann en stóð sig heilt yfir vel.

Hákon Arnar Haraldsson - 7
Alltaf hætta þegar Hákon kemst í boltann á vallarhelmingi andstæðingsins. Var óheppinn að skora ekki í fyrri hálfleik en skapaði góðar stöður.

Ísak Bergmann Jóhannesson - 8
Flottur í sínu hlutverki. Var mikið í boltanum og kom honum yfirleitt alltaf vel frá sér.

Brynjólfur Willumsson - 8
Skoraði sitt fyrsta landsliðsmark þegar hann fylgdi eftir af harðfylgi. Komst vel frá sínu og sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Var óheppinn að skora ekki annað mark þegar hann átti tilraun í stöngina.

Orri Steinn Óskarsson - 9
Kemur að öllum þremur mörkum Íslands. Alvöru fyrirliðaframmistaða hjá Orra.

Andri Lucas Guðjohnsen - 7
Skoraði af öryggi af vítapunktinum og var hættulegur. Stuðningsmenn Blackburn fögnuðu þegar hann var tekinn af velli í hálfleik.

Varamenn:
Gylfi Þór Sigurðsson - 7
Kristian Hlynsson - 6
Aron Einar Gunnarsson - 6
Jón Dagur Þorsteinsson - 6
Ísak Snær spilaði ekki nóg til að fá einkunn.
Einkunnir Íslands - Alvöru fyrirliðaframmistaða
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Einkunnir Íslands - Alvöru fyrirliðaframmistaða
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Einkunnir Íslands - Alvöru fyrirliðaframmistaða
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Einkunnir Íslands - Alvöru fyrirliðaframmistaða
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.