Fotbolti.net
17.12.14 - 15:01
Elvar Geir Magnússon

Helena tekur við norsku liði (Staðfest)

Helena Ólafsdóttir.

Helena Ólafsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðin þjálfari FK Fortuna Álasund sem er í fjórða sæti í sínum riðli í B-deild kvenna í Noregi.
„Lífið er breytingum háð. Fékk símtal fyrir 13 dögum og í dag hef ég ákveðið að gerast þjálfari FK Fortuna Álasund næstu tvö árin Þjálfunin verður mitt aðalstarf í fyrsta sinn og ég get eiginlega ekki lýst því hvað ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir,\" skrifaði Helena á Facebook.

Helena er einn reyndasti þjálfari landsins og skrifaði hún undir tveggja ára samning og er boðin velkomin á heimasíðu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.