Fotbolti.net
17.12.20 - 15:23
Magnús Már Einarsson

Dominik Szoboszlai til RB Leipzig (Staðfest)

Szoboszlai gerði samning við Leipzig sem gildir til ársins 2025.

Szoboszlai gerði samning við Leipzig sem gildir til ársins 2025.

Canon

Mynd: Getty Images

RB Leipzig hefur keypt ungverska miðjumanninn Dominik Szoboszlai frá RB Salzburg.

Kaupverðið hljóðar upp á 25 milljónir evra eða um það bil 22,5 milljónir punda.
Hinn tvítugi Szoboszlai var einnig undir smásjá Arsenal og fleiri félaga en hann mun fá leikheimild með RB Leipzig í janúar.

Szoboszlai getur því spilað með liðinu gegn Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir áramót.

Szoboszlai er lykilmaður í ungverska landsliðinu en hann skoraði sigurmarkið gegn Íslendingum í úrslitaleik um sæti á EM í síðasta mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.