Þjóðverjinn Mesut Özil er líklega að fara að skrifa undir samning við Fenerbahce í Tyrklandi í dag. Hann flaug til Tyrklands í gær og birti myndir þess efnis á samfélagsmiðlum.
Ítalski fjölmiðlamaðurinn Fabrizio Romano, sem er með allt á hreinu þegar kemur að félagaskiptamarkaðnum, segir að það sé búist við því að Özil skrifi undir í dag.
Sagt var frá því í gær að Arsenal og Özil hefðu náð samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins sem átti að renna út næsta sumar.
Özil hefur engan veginn verið inn í myndinni hjá Arsenal á þessu tímabili og nú mun hann leita á önnur mið eftir sjö og hálft ár hjá félaginu.
Hann er að semja við Fenerbahce í Tyrklandi, í landi þar sem hann á ættir að rekja.
Here we go, Mesut. 🤝🟡🔵
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 17, 2021
Özil joins Fenerbahçe on a permanent deal, tomorrow morning he’ll sign his contract. Confirmed. 🇹🇷🛩 https://t.co/439rkOZ2lX
— Mesut Özil (@MesutOzil1088) January 17, 2021
Athugasemdir