Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Fylkis og íslenska landsliðsins, var á dögunum valin íþróttakona Mosfellsbæjar fyrir árið 2020.
Cecilía, sem er aðeins 17 ára, er uppalin í Aftureldingu en skipti yfir í Fylki fyrir tímabilið 2019. Þar hefur hún slegið í gegn og góðar líkur eru á því að hún sé á leið í atvinnumennsku.
Þetta var í 29. sinn sem besta og efnilegasta íþróttafólk Mosfellsbæjar er heiðrað.
Cecilía spilaði á síðasta ári sinn fyrsta A-landsleik en hún var í landsliðshópnum í leikjum ársins í fyrra. Hún var hluti af hópnum sem tryggði sér sæti á EM.
Hún var á dögunum orðuð við enska úrvalsdeildarfélagið Everton.
Athugasemdir