18.02.15 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Guðmundur Óli í Þór (Staðfest)

Guðmundur Óli við undirskriftina

Mynd: Thorsport.is

Guðmundur Óli við undirskriftina

Mynd: Thorsport.is
Þór í fyrstu deild karla hefur fengið góðan styrk fyrir komandi tímabil en Guðmundur Óli Steingrímsson er kominn til félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Guðmundur Óli, sem er 29 ára gamall, er uppalinn hjá Völsungi en hann lék með liðinu til ársins 2008 og svo aftur árið 2013.
Hann lék þá með KA í fimm tímabil en einnig hefur hann leikið með KV og KFG.
Hann hefur æft með Þór undanfarnar vikur og spilaði þá með liðinu í Kjarnafæðismótinu en hann hefur nú samið við félagið.
Hann er því klár til að spila með liðinu er það mætir Keflavík á laugardag í Lengjubikarnum.