18.02.15 - 20:59
Brynjar Ingi Erluson
Nene til West Ham (Staðfest)

Nene í leik með PSG

Mynd: Getty Images

Nene í leik með PSG

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United hefur staðfest komu brasilíska framherjans Nene en þetta kemur fram í kvöld.
Nene, sem er 33 ára gamall, hefur verið án félags í nokkrar vikur en hann var síðast á mála hjá Al Gharafa í Katar.
Brasilíski framherjinn lék með Paris Saint-Germain í Frakklandi frá árunum 2010 til 2013 og gerði góða hluti þar áður en hann fór til Al Gharafa.
WBA hafði mikinn áhuga á að fá Nene en West Ham hafði betur og hefur nú gert samning við hann út tímabilið með möguleika á framlengingu um ár.
Hann verður því klár í slaginn er West Ham mætir Tottenham Hotspur á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni.