Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 18. febrúar 2021 07:00
Victor Pálsson
Pirlo hundfúll eftir leikinn - „Fengu þetta á silfurfati"
Mynd: Getty Images
Andrea Pirlo, stjóri Juventus, var virkilega súr í gær eftir 2-1 tap liðsins gegn Porto í Meistaradeildinni.

Juventus fékk á sig mark strax í byrjun leiks og náði aldrei neinum alvöru tökum í þessu tapi.

Pirlo var búinn að undirbúa sína menn vel fyrir leikinn og var ekki ánægður með hvernig þeir svöruðu fyrsta markinu.

„Við vorum vel undirbúnir fyrir þennan leik, þetta snýst ekki um hugarfari heldur að gefa þeim mark á silfurfati á fyrstu mínútu og það gerði allt erfiðara," sagði Pirlo.

„Þegar þú færð skrítið mark á þig á fyrstu mínútu þá er eðlilegt að leikmenn missi sjálfstraust, sérstaklega gegn liði sem veit hvernig á að verjast."

„Við brugðumst rangt við þegar við fengum á okkur markið. Við ætluðum að sækja meira í svæðin en ef þú tekur of margar snertingar þá flækirðu hlutina."
Athugasemdir
banner
banner