Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
banner
   mið 18. febrúar 2026 21:04
Snæbjört Pálsdóttir
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Kvenaboltinn
Markvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir spilar með Häcken
Markvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir spilar með Häcken
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænka liðið Häcken lagði Breiðablik 1-4 á Kópavogsvelli í kvöld, 11-1 samanlagt í einvígi þeirra í Evrópubikarnum og er komið áfram í undanúrslit.

Fanney Inga Birkisdóttir varði mark Häcken í kvöld, aðspurð um tilfinningarnar eftir leikinn svaraði hún;

„Þær eru góðar sko, ánægðar að vera komnar áfram í næstu umferð. Verður spennandi að fá að spila undanúrslit í Evrópukeppninni og við erum bara peppaðar."


Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 Häcken

„Ótrúlega gaman að koma hingað heim og fá að spila, er búin að sýna liðinu, Häcken, aðeins um Reykjavík og svo er alltaf mjög gaman að hafa fjölskylduna uppi í stúku."

„Smá skrítið að mæta Elísu svona í grænu, mér finnst rauður fara henni betur sko en það er bara gaman að keppa á móti henni."

„Þetta var rosa sleggja frá henni, þannig ég verð bara að taka hattinn af fyrir því og segja vel gert."

Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan


Athugasemdir
banner
banner