Fotbolti.net
18.03.15 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Alexander Aron í Fram (Staðfest)

Alexander Aron í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alexander Aron Davorsson hefur gengið til liðs við Fram en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gærkvöldi. Þetta staðfesti Alexander í samtali við Fótbolta.net.
Alexander Aron var næstmarkahæstur í 2. deild í fyrra með Aftureldingu. Síðastliðið haust gekk hann til liðs við Fjarðabyggð.

Hann stoppaði þó stutt við hjá Fjarðabyggð en hann hætti hjá félaginu á dögunum af fjölskylduástæðum.

Alexander, sem er 23 ára gamall, æfði með Fram í síðustu viku og hann lagði upp tvö mörk í 4-0 sigri liðsins á Njarðvík í æfingaleik á dögunum.

Fleiri félög höfðu sýnt áhuga á að fá Alexander í sínar raðir en hann ákvað að semja við Fram.

,,Fram er flottur klúbbur og þeim líst vel á mig,\" sagði Alexander Aron við Fótbolta.net á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.