18.03.15 - 14:40
Elvar Geir Magnússon
Arnar Viðars rekinn frá Cercle Brugge (Staðfest)

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Kristján Bernburg

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Kristján Bernburg
Belgíska félagið Cercle Brugge hefur tilkynnt um þjálfaraskipti en Arnar Þór Viðarsson, fyrrum leikmaður íslenska landsliðsins, hefur verið látinn taka pokann sinn.
Arnar hefur haldið um stjórnartaumana síðan í október en hann hafði þá verið aðstoðarþjálfari í rúmt ár.
Arnar hefur haldið um stjórnartaumana síðan í október en hann hafði þá verið aðstoðarþjálfari í rúmt ár.
Liðinu tókst ekki að rétta úr kútnum undir stjórn Arnars og þarf að fara í umspil um að halda sæti sínu í efstu deild Belgíu.
Cercle Brugge tapaði 3-2 fyrir Mechelen í lokaumferð deildarinnar á sunnudag eftir að hafa náð tveggja marka forystu.
Hollendingurinn Dennis Van Wijk stýrir liðinu í umspilinu.
Cercle Brugge tapaði 3-2 fyrir Mechelen í lokaumferð deildarinnar á sunnudag eftir að hafa náð tveggja marka forystu.
Hollendingurinn Dennis Van Wijk stýrir liðinu í umspilinu.
