Fotbolti.net
18.03.15 - 15:05
Elvar Geir Magnússon

Elvar Páll Sigurðsson í Leikni (Staðfest)

Elvar Páll og Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis.

Elvar Páll og Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis.

Canon

Mynd: Leiknir.com

Sóknarmaðurinn Elvar Páll Sigurðsson hefur komist að samkomulagi við Leikni og mun spila með liðinu í Pepsi-deildinni á komandi tímabili þar sem Breiðholtsliðið er nýliði.

<i>„Elvar Páll er virkilega góð viðbóð við Leiknisliðið og það er fagnaðarefni að fá kappann til Leiknis,\"</i> segir á heimasíðu Leiknis þar sem fram kemur að samkomulag hafi náðst við Breiðablik þar sem hannvar samningsbundinn.
Elvar Páll lék á síðustu leiktíð 17 leiki með Breiðabliki og skoraði í þeim tvö mörk í Pepsi-deildinni. Árið þar á undan lék hann með Tindastóli í 1. deild og lék þá 14 leiki og skoraði í þeim 6 mörk. Hann var kallaður til baka í Breiðablik það ár og lék einn leik áður en hann hélt til náms erlendis.

Elvar Páll kvaddi félaga sína með kveðju á Fésbókarsíðu meistaraflokks Breiðabliks með þessum orðum:

„Í hádeginu skrifaði ég undir tveggja ára samning við Leikni Reykjavík og mun því spila á Ghetto Ground á næsta tímabili. Það er alltaf erfitt að yfirgefa svona flott félag og frábæran hóp af topp mönnum eins og þið eruð en ég tel þetta vera rétt skref fyrir mig á þessum tímapunkti. Þykir rosalega vænt um ykkur og óska ykkur alls hins besta,\" skrifaði Elvar samkvæmt blikar.is.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Leiknir bætir við sig frá hópnum sem vann 1. deildina síðasta sumar. Áður hafði Leiknir fengið miðjumanninn Atla Arnason frá Tindastóli, sóknarmanninn Kolbein Kárason frá Val og þá kom varnarmaðurinn Halldór Kristinn Halldórsson heim frá Keflavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.