Fotbolti.net
18.03.15 - 14:35
Magnús Már Einarsson

Jökull Elísabetarson í KV (Staðfest)

Jökull í leik með KV árið 2012.

Jökull í leik með KV árið 2012.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Jökull Ingason Elísabetarson hefur fengið félagaskipti yfir í KV í 2. deildinni.

Jökull lék með ÍBV síðastliðið sumar en greindi frá því eftir tímabil að hann myndi fara frá Eyjamönnum.
Þessi þrítugi leikmaður íhugaði að leggja skóna á hilluna en hann hefur nú skipt yfir í KV.

Jökull er uppalinn hjá KR en hann lék með Breiðabliki í fjögur ár áður en hann fór til ÍBV og þar áður var hann á mála hjá Víkingi R.

Þá lék hann á láni með KV síðari hluta sumars 2012 og þekkir því til hjá félaginu.

Stjórn KV býður Jökul Elísabetarson hjartanlega velkominn í félagið! Kemur með mikla reynslu og gæði inn í liðið. #fotbolti #KVnation

— KV Fótbolti (@KVfotbolti) March 18, 2015

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.