Fotbolti.net
18.03.21 - 19:10
Victor Pálsson

Halldór Páll framlengir við ÍBV (Staðfest)

Halldór Páll framlengir við ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍBV

Halldór Páll Geirsson hefur krotað undir nýjan samning við ÍBV en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í kvöld.
Um er að ræða uppalinn Eyjamann sem lék 19 leiki með liðinu í næst efstu deild á síðustu leiktíð.

Halldór hefur samtals spilað 65 deildarleiki fyrir ÍBV en hann starfar einnig sem markmannsþjálfari fyrir yngri flokka félagsins.

ÍBV stefnir að því að komast upp úr Lengjudeildinni á næstu leiktíð en liðið er með marga afar góða leikmenn innanborðs.

Tilkynning ÍBV:

Halldór Páll Geirsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV. Samningurinn gildir út tímabilið 2023 en Halldór verður 27 ára í sumar.

Á sínum ferli hefur Halldór leikið 65 deildarleiki fyrir ÍBV en lang flestir þeirra eru í efstu deild. Til gamans má geta að Halldór Páll er í kennaranámi og er einnig markmannsþjálfari hjá yngri iðkenndum félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.