Fotbolti.net
18.03.21 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Thiago Silva lifði sig inn í leikinn í stúkunni

Thiago Silva lifði sig inn í leikinn í stúkunni
Canon

Mynd: Getty Images

Thiago Silva, varnarmaður Chelsea, hefur verið á meiðslalistanum undanfarnar vikur.
Chelsea lagði Atletico Madrid 2-0 í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeilarinnar í gærkvöldi en í útsendingu frá leiknum mátti sjá Silva lifa sig vel inn í hlutina.

Silva var á fleygiferð í stúkunni á lokamínútunum og öskraði liðsfélaga sína áfram.

Þegar Emerson Palmieri gulltryggði 2-0 sigur Chelsea í viðbótartíma fagnaði Silva síðan ógurlega ásamt Jorginho og Mason Mount sem voru í stúkunni þar sem þeir tóku út leikbann.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.