Willum Þór Willumsson, leikmaður Go Ahead Eagles í Hollandi, hefur verið meiddur í síðustu leikjum en sneri aftur í dag og gerði sigurmark liðsins í 2-1 sigrinum á Utrecht í hollensku úrvalsdeildinni.
Blikinn hafði misst af fjórum af síðustu fimm leikjum liðsins vegna meiðsla.
Willum hefur verið fastamaður í Eagles-liðinu á þessu tímabili og sýndi hann af hverju þegar hann kom inn af bekknum um miðjan síðari hálfleikinn.
Staðan var 1-1 alveg fram í uppbótartíma en þá tók Willum til sinna ráða og gerði sigurmark Eagles.
Öll fjölskylda leikmannsins var á vellinum í dag en faðir hans, Willum Þór Þórsson, fagnaði sextugsafmæli sínu í gær og var þetta því ágætis afmælisgjöf frá syninum.
Þetta var fimmta mark Willums í deildinni á þessu tímabili en Eagles er í 11. sæti með 29 stig.
???? Willum Willumsson (f.1998)
— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) March 18, 2023
???????? Go Ahead Eagles
???? FC Ultrecht
????? #Íslendingavaktin pic.twitter.com/WEdgcyHC00
Athugasemdir