Nokkrir æfingaleikir fóru fram á Íslandi í dag.
Haukar fengu ÍBV í heimsókn á Ásvelli og fór Lengjudeildarliðið með sigur af hólmi, 1-2. Gary Martin og Telmo Castanheira gerðu mörk ÍBV en Gísli Þröstur Kristjánsson skoraði mark Hauka.
Þá vann Breiðablik öruggan sigur á Fylki. Árni Vilhjálmsson var á meðal þeirra sem komst á blað í leiknum.
FH og ÍA spiluðu æfingaleik í Skessunni í gær í kvennaflokki en bæði lið spila í Lengjudeild kvenna í sumar. Liðunum er spáð ólíku gengi en í spá Heimavallarins fyrir skömmu var FH spáð sigri í deildinni en ÍA stelpum falli.
FH stelpur voru miklu frískari í leiknum og sigruðu 5-1. Skagastúlkur náðu forystu snemma í fyrri hálfleik er FH stelpur gerðu slysalegt sjálfsmark. Eftir það tóku heimamenn öll völd á vellinum og voru í hápressu allan leikinn. Í hálfleik var staðan 2-1 fyrir FH. Þær bættu síðan þremur mörkum við í seinni hálfleik og áttu fjölda annarra tækifæra til að skora fleiri mörk.
FH 5-1 ÍA
Breiðablik 5 – 2 Fylkir
Markaskorarar Blika: Árni Vill, Jason Daði, Thomas Mikkelsen, Gísli Eyjólfs og Alexander Helgi
Markaskorarar Fylkis: Arnór Borg og Arnór Gauti.
Haukar 1 – 2 ÍBV
0-1 Gary Martin (´13)
1-1 Gísli Þröstur Kristjánsson(´32)
1-2 Telmo Castanheira (´93)
Finnur Orri Margeirsson
Dagur Dan Þórhallsson
Blikar sáu um að skora öll mörkin: Arnór Borg 1, Árni Vill 1, Jason Daði 1, Thomas 1, Gísli Eyjólfs 1, og Arnór Gauti 1.
— Blikar.is (@blikar_is) April 18, 2021
Athugasemdir