Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn fyrir PAOK í dag sem tók á móti Olympiakos í grísku úrvalsdeildinni.
Olympiakos er lang besta lið Grikklands og situr liðið á toppnum með 19 stiga forystu.
PAOK tókst hins vegar að leggja meistarana að velli í dag. Leikurinn endaði 2-0 þar sem Andrija Zivkovic gerði tvennu fyrir PAOK.
PAOK er í þriðja sæti deildarinnar með 54 stig.
Emil Hallfreðsson kom þá inn af bekknum hjá Padova sem tapaði óvænt gegn Modena. Liðið hefur nú tvær umferðir til að komast í toppsætið, annars þarf það að fara í umspil.
Athugasemdir