Sædís Rún var skiljanlega svekkt eftir 0-1 tap Íslands gegn Englandi í kvöld, þar sem íslenska liðið skapaði sér fjölda dauðafæra í seinni hálfleik en náði ekki að koma boltanum yfir línuna. Hún telur liðið hafa átt skilið meira úr leiknum.
„Drullusvekkjandi. Mér finnst við hafa átt skilið meira en núll stig úr þessum leik,“ sagði Sædís Rún eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 England
Hún lýsti leiknum sem kaflaskiptum og var ekki sátt við markið sem íslenska liðið fékk á sig.
„Þetta var kaflaskiptur leikur og leiðinlegt mark sem við fáum á okkur.“
Ísland fékk fjölda dauðafæra, sérstaklega í seinni hálfleik, en boltinn vildi einfaldlega ekki inn.
„Nei ég ætla nú ekki að segja að það sé einhver bölvun á okkur en stundum er þetta bara svona. Við náðum ekki að pota honum yfir línuna sem er ótrúlegt en engu að síður, eins og í markinu þá á ég bara að gera betur en það er bara eins og það er.“
Þrátt fyrir svekkelsið sá hún þó jákvæða punkta í frammistöðunni, sérstaklega eftir hlé.
„Mér fannst verkefnið í heild bara gott, sérstaklega í dag. Seinni hálfleikurinn er 100% eitthvað sem við munum byggja á.“
„Þær voru ekki að skapa mikið af færum, það var bara þetta eina móment sem þær refsa okkur harkalega.“
Góð mæting á Laugardalsvelli skilaði sér inn á völlinn að hennar mati.
„Jú það gefur okkur mikið að hafa sem flesta og stórt hrós á þá sem komu, þið voruð frábær. Vonandi verður þetta alltaf svona á heimaleikjum.“
Að lokum dró hún verkefnið saman í eina setningu:
„Skref fram á við.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan





















