Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 19:08
Brynjar Ingi Erluson
„Ein besta frammistaða sem ég hef séð í einhvern tíma“
Eimskip
Íslenska liðið var stórkostlegt í síðari hálfleiknum
Íslenska liðið var stórkostlegt í síðari hálfleiknum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Glódís Perla sló landsleikjametið
Glódís Perla sló landsleikjametið
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hörður Magnússon og Margrét Lára Viðarsdóttir gerðu upp 1-0 tap Íslands gegn Englandi í undankeppni HM með Eddu Sif Pálsdóttur á RÚV í kvöld, en þau voru sammála um að liðið hafi spilað frábærlega í síðari hálfleiknum.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  1 England

Frammistaðan var kaflaskipt. Ísland var í nauðvörn í fyrri hálfleiknum, en spilaði allt annan bolta í þeim síðari og í raun ótrúlegt að það hafi ekki jafnað og jafnvel unnið leikinn.

„Dagur og nótt. Þessi frammistaða í seinni hálfleik er ein besta frammistaða sem ég hef séð frá íslenska kvennalandsliðinu í einhvern tíma. Vissulega unnum við Þjóðverja, en þær voru hugrakkar, ákafar og settu enska liðið undir mikla pressu. Glódís var að reka öftustu línuna framar á völlinn og þær ensku áttu engin svör, nema Hannah Hampton. Hún átti svör,“ sagði Hörður og hrósaði Margrét Lára þeim sérstaklega fyrir svörin í síðari hálfleiknum.

„Það er ekki hægt að gera annað en að hrósa stelpunum hvernig þær komu inn í síðari hálfleikinn. Það var miklu meiri trú og ég held að við höfum hætt að pæla í því hvernig England spilar fótbolta og fórum að spila okkar fótbolta. Okkar stelpur eru að spila svona fótbolta í hverri einustu viku með sínum félagsliðum og við eigum að gera það með landsliðinu,“ sagði Margrét.

Hörður var ánægður með að sjá breytingarnar hjá Þorsteini Halldórssyni og segist innilega vona að Ísland verði með á HM á næsta ári.

„Já, töluðum um dag og nótt, vetur og sumar. Þetta var gaman að sjá og líka nálgunin hjá þjálfaranum. Hann gerir fjórar breytingar og svo þrefalda skiptingu eftir korter í seinni hálfleik sem er ólíkt honum líka. Ég vil sjá meira af þessu, nýta hópinn og búa til meiri samkeppni og ekki vera óhræddur við að taka leikmenn út sem hafa átt fast sæti. Við gætum nefnt einhvern nöfn, en samt sem áður virkaði þetta og svo óheppnar að ná ekki að skora mark ef ekki tvö.“

„Fyrirfram ætti þetta að vera niðurstaðan og gerir næsta glugga enn meira spennandi. Við þurfum að ná í úrslit á móti Úkraínu og ef við gerum það ekki þurfum við úrslit gegn Spánverjum. Vonandi náum við þessu þriðja sæti, förum í umspil og komumst á HM í Brasilíu á næsta ári. Það yrði stórkostlegt og fyrsta skipti í sögunni.“


Margrét kom síðan með þrumuræðu um að komast á HM og gera það ekki bara fyrir Glódísi Perlu sem var að slá landsleikjametið, heldur fyrir komandi kynslóðir.

„Já, við þurfum að sjá Glódísi fara á HM og spila úrslitaleik í Meistaradeild. Ég ætla ekki að setja neina pressu á hana en við höldum svo mikið með þessum íslensku stelpum og viljum svo taka þessi skref fyrir komandi kynslóðir líka. Það er svo mikilvægt og auðvitað getum við alltaf dottið í þann bita að við erum litla Ísland og eigum ekki að eiga séns. Við eigum samt bara að henda því út um gluggann, þetta eru ellefu á mótti ellefu hverju sinni og við erum með frábært lið, með leikmenn á frábærum stað og frábærum aldri. Þær hafa verið lengi saman og stelpurnar eru með kröfur á sig og vilja þetta sjálfar þannig af hverju eigum við ekki að halda með þeim og vilja það líka þó að stundum blási upp ein og ein gagnrýnisrödd hér og þar. Það er bara partur af þessu og það sem leikmenn vilja,“ sagði Margrét Lára á RÚV:
Slapp
banner
banner