Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 18:47
Snæbjört Pálsdóttir
Einkunnir Íslands - Í verulega kaflaskiptum leik
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tapaði naumlega 0-1 gegn Evrópumeisturum Englands í kaflaskiptum leik í undankeppni HM í dag. Virkilega góð frammistaða hjá Íslandi og sérstaklega varnarlega, en vantaði smá heppni í sóknarleiknum til þess að landa stigi.


Lestu um leikinn: Ísland 0 -  1 England

Cecilía Rán Rúnarsdóttir – 7

Hún ásamt varnarlínunni kom klárlega í veg fyrir að tapið yrði stærra. Varði oft á tíðum mjög vel og í návígum var örugg í sínum aðgerðum.

Glódís Perla Viggósdóttir – 7  Maður leiksins

Fyrirliðinn var mjög sterk varnarlega og leiddi sitt lið í dag. Sló svo landsleikjametið í þokkabót, er nú leikjahæsti leikmaðurinn frá upphafi.

5. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - 6

Var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti í dag, stóð sig fínt inn á miðjunni, setti þó fyrstu hornspyrnu liðsins beint útaf.

6. Ingibjörg Sigurðardóttir - 6

Var fín í dag og stóð vaktina vel líkt og öll varnarlínan.

8. Alexandra Jóhannsdóttir – 6,5

Var leiðtoginn inn á miðjunni og varðist mjög vel. Er sem fyrr sterk inn í teignum.

9. Diljá Ýr Zomers - 6

Var dugleg í dag bæði varnar- og sóknarlega. Datt niður í 5 mannavörn en var fljót að koma sér ofar í pressu þegar Ísland komst ofar.

17. Ída Marín Hermannsdóttir – 5,5

Gerði sitt fínt en missti Hamp frá sér í markinu.

18. Guðrún Arnardóttir – 6

Stóð vaktina fínt í vörninni í dag.

19. Sædís Rún Heiðarsdóttir – 6

Var fín hélt Lucy Bronze vel í skefjum en missti Hemp framúr sér í markinu. Átti frábæra aukaspyrnu í seinni hálfleik sem munaði litlu að Ísland skoraði úr.

22. Linda Líf Boama – 5

Hennar fyrsti leikur í byrjunarliðinu, hafði úr mjög litlu að moða fram á við og virkaði á köflum frekar týnd, sérstaklega í fyrri hálfleik. Var betri í seinni hálfleiknum.

23. Sveindís Jane Jónsdóttir - 6,5 

Hafði eins og Linda úr litlu að moða fram á við en var fín varnarlega í fyrri hálfleik. Alltaf með stórhættuleg löng innköst. Miklu betri í seinni hálfleik

Varamenn:

Sandra María Jessen – 5,5

Hildur Antonsdóttir - 6

Hafrún Rakel – 6

Katla Tryggvadóttir – 6

Aðrar spiluðu ekki nóg til að fá einkunn.


Slapp
banner
banner