Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   lau 18. apríl 2026 20:30
Snæbjört Pálsdóttir
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Eimskip
Emilía Kiær var í byrjunarliðinu í dag og lét vel að sér kveða.
Emilía Kiær var í byrjunarliðinu í dag og lét vel að sér kveða.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Emilía Kiær var bæði svekkt og stolt eftir 0-1 tap Íslands gegn Englandi, þar sem íslenska liðið skapaði sér stór færi undir lok leiksins en náði ekki að jafna.

„Þetta er svo skrítið, því það er svekkelsi eftir svona leik. Við sjáum að við erum að skapa dauðafæri í lokin og þá vill maður auðvitað fá meira úr þessu en tap,“ sagði Emilía eftir leik.

„Svo þarf maður samt að hugsa hversu stórkostlegt lið England er. Að fá svona tilfinningu eftir leik á líka að vera jákvætt.“


Lestu um leikinn: Ísland 0 -  1 England

Emilía var í byrjunarliðinu og leið vel inn á vellinum.

„Vel, ég elska að spila með þessum stelpum, þessu liði og spila fyrir Ísland.“

Ísland skapaði sér fleiri dauðafæri í seinni hálfleik og Emilía telur það sýna framfarir.

„Það sýnir að við erum að taka þessi næstu skref sem lið. Við viljum meira og við getum meira.“

Boltinn vildi hins vegar ekki inn þrátt fyrir ítrekuð færi, en hún taldi enga „bölvun“ þar að baki.

„Bölvun? Nei, ég held það ekki. Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi. Við höldum bara áfram að æfa, reyna gera betur og byggja ofan á – horfa á það sem við gerum vel og ekki vel.“

Að lokum horfði hún á verkefnið í heild.

„Fullt af góðum hlutum sem við getum tekið með úr báðum leikjunum. Það gerir næsta verkefni ennþá meira spennandi.“

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner