Ólafur Helgi Kristjánsson, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, mætti á fund Hagsmunasamtaka Knattspyrnukvenna og Tólfunnar í dag. Þar fór hann yfir það hvernig íslenska liðið ætlar að leggja upp leikinn gegn stjörnum prýddu liði Englands. Það er ljóst að vinnan verður lögð í varnarleikinn, en vopnin frammi eru beitt.
Þjálfarateymið gerir fjórar breytingar á liðinu frá 1-0 sigrinum gegn Úkraínu.
Þær Ída Marín Hermannsdóttir, Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Linda Líf Boama og Diljá Ýr Zomers koma allar inn í liðið.
Út fara þær Hildur Antonsdóttir, Thelma Karen Pálmadóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sandra María Jessen.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 England
Óli var hreinskilinn með það að England muni líklega vera meira með boltann í dag og því eru áherslurnar í íslenska leikskipulaginu mjög skýrar. Ísland mun leggja mikla áherslu á að verjast skipulega sem ein heild og loka sérstaklega á hættulega kanta enska liðsins. Til að þétta raðirnar enn frekar mun Diljá Ýr falla aftur í varnarvinnunni, þannig að þegar liðið verst verður þetta í raun fimm manna lína með þrjá leikmenn á miðjunni.
Þrátt fyrir þennan þétta varnarmúr verður ógn fram á við. Sóknarleikurinn mun hvíla á herðum tveggja afar hraðra leikmanna, þeirra Sveindísar Jane og Lindu Lífar, sem munu liggja frammi og bíða þess að refsa enska liðinu með skyndisóknum.
Þegar Ísland vinnur boltann er planið ekki að sparka honum bara í burtu. Óli nefndi að liðið þyrfti að nýta þær stundir til að hvíla sig á boltanum og halda honum innan liðsins, nýta þau tækifæri sem gefast þegar England skilur eftir pláss og búa til marktækifæri af mikilli yfirvegun.
Þótt uppstillingin sé í grunninn 4-3-3 mun hún breytast mikið eftir því hvort liðið er með eða án bolta.
„Þetta verður góð upplifun og góður leikur,“ sagði Óli að lokum, en ljóst er að íslenska liðið mætir til leiks með hárfínt leikplan gegn Evrópumeisturunum.



