Sveindís Jane Jónsdóttir var svekkt eftir 0-1 tap Íslands gegn Englandi en sá þó marga jákvæða punkta í leik liðsins, sem skapaði sér fjölda dauðafæra í seinni hálfleik.
„Mjög svekkjandi, hefðum auðvitað viljað fá eitthvað út úr þessu. Við fórum inn í þennan leik til þess að vinna,“ sagði Sveindís eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 England
Hún taldi íslenska liðið hafa átt skilið meira miðað við gang leiksins.
„Hefðum allavega getað fengið eitt stig miðað við færin sem við sköpuðum en það er líka jákvætt að við getum skapað færi á móti svona frábæru liði.“
„Ég er bara nokkuð sátt með seinni hálfleikinn og hvernig hann spilaðist. Sköpuðum góð færi, dauðafæri.“
Þrátt fyrir mörg færi vildi boltinn ekki inn, en hún telur ekki um neina „bölvun“ að ræða.
„Nei, nei, svona lið hafa alltaf smá heppnina með sér þegar það er búið að ganga vel. Auðvitað býr maður til eigin heppni og allt það. Hún stendur sig vel í markinu og lokar því alveg. Jákvæða er allavega að við erum að búa til færin. Þetta er ekki að við séum eitthvað lélegar að klára, við erum að setja þetta á markið allavega, eitt í stöngina líka. Þetta er einhver óheppni kannski en ég myndi ekki segja neina bölvun. Við skoruðum í síðasta leik.“
Að lokum fór hún yfir verkefnið í heild.
„Þrjú stig af sex, við mættum í þetta verkefni og vildum fá sex stig en við verðum að sætta okkur við þrjú. Áttum frábæra frammistöðu í dag og við getum tekið það með okkur. Við erum bara ótrúlega stoltar. Þetta var geggjað verkefni og ég er mjög stolt af því að hafa tekið þátt í þessu og upplifa Glódísi spila 146 leiki, þetta er bara risastórt.“
„Við vonandi tökum sex stig í næsta glugga.“






















