18.05.21 - 18:41
Brynjar Ingi Erluson
Benzema aftur í franska landsliðið (Staðfest)

Karim Benzema er mættur aftur

Mynd: Getty Images

Karim Benzema er mættur aftur

Mynd: Getty Images
Karim Benzema, framherji Real Madrid, er í 26-manna hóp franska landsliðsins fyrir Evrópumótið í sumar en Didier Deschamps, þjálfari liðsins, tilkynnti hópinn fyrir skömmu.
Benzema hefur ekki spilað með franska landsliðinu í sex ár eða frá því það kom upp eitthvert undarlegasta mál í sögu franska landsliðsins.
Franski framherjinn átti að hafa kúgað Mathieu Valbuena, liðsfélaga hans í franska landsliðshópnum, vegna kynlífsmyndbands. Vinir Benzema höfðu hótað því að leka myndbandinu ef Valbuena myndi ekki greiða þeim rausnarlega.
Benzema var rekinn úr landsliðinu og hefur ekki spilað síðan en Olivier Giroud hefur leyst stöðu hans ágætlega til þessa. Deschamps gat þó ekki horft framhjá árangri Benzema hjá Real Madrid og valdi hann í 26-manna hópinn fyrir Evrópumótið í sumar.
Hægt er að sjá hópinn í heild sinni hér fyrir neðan.
Hópur Frakklands:
Markverðir: Hugo Llloris (Tottenham), Steve Mandanda (Marseille), Mike Maignan (Lille)
Varnarmenn: Leo Dubois (Lyon), Benjamin Pavard (Bayern), Kurt Zouma (Chelsea), Jules Kounde (Sevilla), Raphael Varane (Real Madrid), Clement Lenglet (Barcelona), Presnel Kimpembe (PSG), Lucas Digne (Everton), Lucas Hernandez (Bayern).
Miðjumenn: N'golo Kante (Chelsea), Paul Pogba (Man Utd), Adrien Rabiot (Juventus), Corentin Tolisso (Bayern), Moussa Sissoko (Tottenham).
Sóknarmenn: Karim Benzema (Real Madrid), Olivier Giroud (Chelsea), Kylian Mbappe (PSG), Marcus Thuram (Gladbach), Kingsley Coman (Bayern), Wissam Ben Yedder (Mónakó), Antoine Griezmann (Barcelona), Thomas Lemar (Atlético Madríd), Ousmane Dembele (Barcelona).