Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 18. maí 2022 18:11
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Sheffield United traðkaði á stuðningsmanni Forest
Oli McBurnie
Oli McBurnie
Mynd: Getty Images
Oli McBurnie, leikmaður Sheffield United, traðkaði á stuðningsmanni Nottingham Forest í látunum eftir leik liðanna í umspili ensku B-deildarinnar í gær.

Forest kom sér í úrslit umspilsins eftir vítakeppni en Bryce Samba varði þrjár vítaspyrnur og tryggði þannig liði sínu áfram.

Eftir leikinn ætlaði allt um koll að eyra. Stuðningsmenn Forest stormuðu inn á völlinn og kom upp skelfilegt atvik er einn stuðningsmaður félagsins skallaði Billy Sharp, leikmann Sheffield United.

Stuðningsmaðurinn var handtekinn í kjölfarið en mikil læti voru á vellinum.

Nú er myndband í dreifingu af skoska landsliðsmanninum Oli McBurnie en hann sést þar traðka á stuðningsmanni Forest en ekki er vitað hvað átti sér stað í aðdragandanum. Hér fyrir neðan má sjá stutta klippu af því er McBurnie traðkar á honum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner