Fotbolti.net
18.05.26 - 22:37
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta: Bíðum spenntir eftir leiknum á morgun

Arteta: Bíðum spenntir eftir leiknum á morgun
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta var kátur eftir lokaflautið í naumum sigri Arsenal gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Arsenal er núna aðeins einum sigri frá því að tryggja sér langþráðan Englandsmeistaratitil. Liðið heimsækir nágranna sína í Crystal Palace í lokaumferðinni á sunnudag.

„Ég er ánægður með frammistöðuna og úrslitin. Í fyrri hálfleik spiluðum við mögulega besta fótbolta sem við höfum spilað allt tímabilið. Við sköpuðum nóg til að vinna þennan leik með stærri mun en það tókst ekki, við vorum óheppnir að skora ekki meira," sagði Arteta að leikslokum.

„Mega ekki tapa á markatölu eftir heimaleik við Burnley"
TENGT EFNI

„Mega ekki tapa á markatölu eftir heimaleik við Burnley"



„Við þurftum að verjast á lokamínútunum, þeir gerðu okkur erfitt fyrir. Þetta er svo ótrúlega erfið deild og ég er mjög ánægður með sigurinn. Við erum með þetta í okkar höndum. Núna bíðum við spenntir eftir leiknum á morgun (Bournemouth gegn Manchester City) og svo undirbúum við okkur fyrir leikinn gegn Palace."

Fallið lið Burnley sýndi mjög góða frammistöðu í 2-2 jafntefli gegn Aston Villa um síðustu helgi.

„Eftir að við sáum síðasta Burnley leik þá vissum við að þetta yrði erfitt verkefni í kvöld og strákarnir gerðu mjög vel að fara með sigur af hólmi. Núna er bara einn leikur eftir."

Arteta var að lokum spurður út í tæklingu Kai Havertz sem uppskar gult spjald sem hefði líklega mátt vera rautt og út í framtíð læriföðurs síns Pep Guardiola sem virðist vera á förum frá Man City eftir tímabilið.

„Ég á eftir að sjá þetta atvik í endursýningu en hann sagði að þetta ætti ekki að vera rautt spjald. Ég veit ekkert um framtíð Pep, þegar hann tekur opinbera ákvörðun þá getum við talað um það."

England: Havertz gerði dýrmætt sigurmark
TENGT EFNI

England: Havertz gerði dýrmætt sigurmark

Arteta: Bíðum spenntir eftir leiknum á morgun
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.