Titilbaráttulið Arsenal lagði Burnley að velli í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni þar sem Kai Havertz skoraði eina mark leiksins eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik.
Heimamenn fengu tækifæri til að bæta fleiri mörkum við leikinn en tókst ekki, svo lokatölur urðu 1-0. Arsenal er núna aðeins einum sigri frá því að tryggja sér sinn fyrsta Englandsmeistaratitil síðan 2004.
Mikel Arteta þjálfari og Martin Ödegaard fyrirliði þökkuðu stuðningsmönnum eftir lokaflautið. Þeir notuðust við hljóðnema til að ávarpa stuðningsmenn í gegnum hátalarakerfið.
„Það hefur fært mér mikla gleði að verða vitni að þeim miklu breytingum sem hafa átt sér stað á þessum leikvangi. Ykkur hefur tekist að breyta þessu í stórkostlegan heimavöll með stuðningi ykkar. Þið eruð hjartað og sálin í þessum klúbbi og við þurfum á ykkur að halda í hverjum einasta heimaleik. Það er á ykkar ábyrgð að styðja við okkur í hvert skipti sem við mætum til leiks," sagði Arteta.
„Stuðningurinn ykkar skiptir okkur öllu máli, það leikur ekki vafi á því. Það sést á leikmönnunum. Takk fyrir. Við sjáumst næst á Selhurst Park og svo í Búdapest!"
Ödegaard tók í svipaða strengi og þjálfarinn sinn þegar hann fékk hljóðnemann í hendurnar.
„Þetta hefur verið stórkostlegt tímabil og núna eru tveir risastórir leikir eftir sem munu ráða öllu. Við viljum vinna þessa titla, það er svo lítið eftir. Ég get lofað ykkur öllum að við munum leggja allt í sölurnar þessa síðustu leiki, sama hvað það kostar. Með ykkar stuðningi erum við tilbúnir til að takast á við síðustu áskoranir tímabilsins.
„Þið hafið verið frábær á áhorfendapöllunum allt tímabilið og sérstaklega þessa síðustu tvo heimaleiki þegar þið hafið mætt á völlinn langt á undan liðinu. Stemningin er mögnuð og núna verðum við að gera okkar besta síðustu tvo leikina!"
18.05.2026 20:57
England: Havertz gerði dýrmætt sigurmark


