Fotbolti.net
18.05.26 - 10:48
Elvar Geir Magnússon

„Myndi ekki hleypa Salah nálægt leikvangnum“

Mo Salah.

Mo Salah.

Canon

Mynd: EPA

Wayne Rooney segir að Mohamed Salah hafi sýnt eigingirni og að Arne Slot eigi að skilja hann eftir utan hóps í lokaumferðinni, þegar Liverpool mætir Brentford á Anfield.

Salah sendi óvænt frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum um helgina og er litið á hana sem gagnrýni á Slot. Yfirlýsingin kom eftir 4-2 tap gegn Aston Villa en hætta er á að Liverpool missi af Meistaradeildarsæti.

Salah gagnrýndi leikstílinn og sagðist vilja sjá Liverpool spila þungarokksboltann sem þeir voru þekktir fyrir undir stjórn Jurgen Klopp.

„Það að við séum að tapa enn einum leiknum á þessu tímabili er ótrúlega sársaukafullt og ekki það sem stuðningsmennirnir verðskulda. Ég vil sjá Liverpool fara aftur í þetta þungarokks sóknarlið sem mótherjarnir óttuðust og verða aftur að liði sem vinnur titla. Það er fótboltinn sem ég þekki og kann að spila, og þurfum við að endurheimta það auðkenni og ekki sleppa því. Þetta er ekkert samningsatriði og allir sem ganga í raðir félagsins verða að aðlagast því," skrifaði Salah meðal annars.
Gerrard um yfirlýsingu Salah: Skaðlegt fyrir stjórann
TENGT EFNI

Gerrard um yfirlýsingu Salah: Skaðlegt fyrir stjórann

Rooney hefur tjáð sig um þetta útspil Salah.

„Mér finnst þetta sorglegt eftir allt sem hann hefur afrekað hjá Liverpool. Þetta er ekki rétti tímapunkturinn til að koma út og skjóta á Slot. Hann er að segja að hann vilji Jurgen Klopp boltann. Ég er á því að Mo Salah ráði ekki lengur við að spila þannig boltann, hann er ekki með fæturna í að spila af þessu tempói og ákefð," segir Rooney.

„Ef ég væri Arne Slot þá myndi ég ekki hleypa honum nálægt leikvangnum í síðasta leiknum. Ég lenti í þessu sjálfur, það kom upp ósætti milli mín og Sir Alex Ferguson og hann var með mig utan hóps í sínum síðasta leik á Old Trafford."

„Salah er að segja að hann treysti ekki né trúi á það sem Arne Slot er að gera og kemur liðsfélögum sínum í óþægilega stöðu. Hann getur ekki sýnt stjóranum sínum þessa óvirðingu án afleiðinga. Ég tel að Salah sé að sýna eigingirni og reyna að láta sjálfum sér líða betur því hann hefur átt mjög dapurt tímabil," segir Rooney.
„Myndi ekki hleypa Salah nálægt leikvangnum“
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.